Skilmálar

Skilmálar

Staðfesting pöntunar

Viðskiptavinur fyllir inn upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilsfang, netfang og síma. Um leið og pöntun er kláruð þá sendir Himalaya Magic staðfestingu á viðskiptavininn í netpósti.

Vara er ekki afhend fyrr en búið er að ganga frá greiðslu.

Afhendingarmáti 
Allar vörur eru sendar innan 2-4 virkra daga frá pöntun ef allt er til á lager.

Ef viðskiptavinur óskar eftir að sækja vöru á lager þá er hægt að sækja í verslun Himalaya Magic í Bergholti 11

Viðskiptavinur fær sendan staðfestingapóst þegar varan er tilbúin til afhendingar á lagernum. 

Opnunartími

Netverslunin er opin allan sólarhringinn. Verslun er opin frá alla daga milli kl. 16:00 – 20:00

Sendingarkostnaður

Hægt er að fá vörurnar heimsendar á höfuðborgarsvæðinu eða sendar beint á næsta pósthús/afgreiðslustað utan höfuðborgarsvæðisins. 

Rúmlitlar pantanir eru sendar með Íslandspósti utan höfuðborgarsvæðisins og er sendingarkostnaður skv. gjaldskrá Íslandspósts. 

Verð

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum og birt með fyrirvara um innsláttarvillur og myndabrengl.

Himalaya Magic áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara.

Skilaréttur
Kaupandi getur skipt vöru innan 14 daga frá kaupdegi í aðra vöru en þá þarf að framvísa kvittun og þarf varan að vera í upprunalegu ástandi. Einnig er hægt að skila keyptri vöru innan 14 daga frá kaupdegi gegn inneignarnótu. Sé hins vegar vöru skilað innan þriggja virkra daga og greiðslukvittun framvísað er hægt að fá vöruna endurgreidda.

Útsöluvörum fæst ekki skilað né skipt nema um gallaða vöru sé að ræða. 

Seljandi tekur einungis við vörum séu þær ónotaðar og í upprunalegum umbúðum og ásigkomulagi. Sé greiðslukvittun ekki til staðar er tekið við vörunni á því verði sem hún er til sölu á hverju sinni. Viðskiptavinur greiðir sendingarkostnað ef skila þarf vörunni. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema um gallaða vöru sé að ræða.  

Gallaðar vörur

Ef um galla á vöru er að ræða þá er hægt að fá aðra sams konar vöru í staðinn.

Að öðrum kosti er gallaða varan endurgreidd.

Eignarréttarfyrirvari

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu. Sé vara ekki greidd samdægurs er pöntuninni sjálfkrafa eytt út.

Trúnaður

Við heitum viðskiptavinum okkar fullum trúnaði. Upplýsingar verða ekki afhendar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum í tengslum við viðskiptin. 

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað. Skilmálar þessir gilda frá 1. mars 2019.

Fyrirspurnir

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar endilega hafðu samband í síma 844-5562 eða sendu okkur póst á himalayamagic(hjá)gmail.com